Stálsmiðja

Verkefni stálsmiðju eru ýmis viðhaldsverkefni í bland við nýsmíði. Verkefni tengd sjávarútvegi hafa löngum verið hryggjarstykkið í starfseminni en auk þeirra eru stóriðjur, matvælaframleiðendur, verktakar og fleiri aðilar þjónustaðir af stálsmiðju Slippsins.

Sem dæmi um verkefni eru.

  • Endurbætur og almennt viðhald skipa
  • Þjónusta við ál- og kísilver
  • Þjónusta við matvælaframleiðendur
  • Almenn stávinna í kringum íbúðar- og atvinnuhúsnæði

Húsakostur og tæki

Húsakostur stálsmiðju er stór, lofthæð mikil og lyftigeta krana í húsinu sú mesta sem um getur á svæðinu. Þar er auðótt að stunda viðgerðir á mjög stórum hlutum t.d byggingakrönum, kranabílum, jarðborum og svo framvegis.

Stálsmiðja Slippsins er vel tækjum búið.

  • Vals
  • Prófílvals
  • Risasög
  • Sax
  • Logskurðarvél
  • Hlaupakettir