Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í
styrk- og stöðugleikamati félagsins fyrir árið 2011. Þetta er annað árið í röð þar sem Slippurinn Akureyri ehf. er
þar á meðal.
Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 245
fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem
framúrskarandi fyrirtæki. Vottun af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri
mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi. Að mati Creditinfo er
mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra
rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar
styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi.
Lesa meira