Slippurinn Akureyri ehf.

Slippurinn í Landanum á Ríkissjónvarpinu Sunnudaginn 20. febrúar 2011 var fjallað um Slippinn Akureyri í einum vinsælasta sjónvarpsþættinum á RÚV,

Slippurinn í Landanum á Ríkissjónvarpinu

Sunnudaginn 20. febrúar 2011 var fjallað um Slippinn Akureyri í einum vinsælasta sjónvarpsþættinum á RÚV, Landanum.  Þar var rætt við Anton Benjamínsson framkvæmdastjóra Slippsins og farið um víðan völl.  Umföllun RÚV og þáttinn má sjá í heild sinni hér.

 

Frétt tekin af vef Ríkisútvarpsins  http://www.ruv.is/.


Er íslenski flotinn í niðurníðslu?

Þessi starfsmaður Slippsins á Akureyri gerir aðallega verið útlend skip, endar bíða íslenskar útgerðir með viðgerðir á meðan óvissa er um fiskveiðistjórnunarkerfið.
Þessi starfsmaður Slippsins á Akureyri gerir aðallega verið útlend skip, endar bíða íslenskar útgerðir með viðgerðir á meðan óvissa er um fiskveiðistjórnunarkerfið.
Starfsmannafjöldi Slippsins á Akureyri hefur rúmlega tvöfaldast á síðastliðnum fimm árum og nú starfa þar um 130 manns. Flest verkefni sem snúa að viðhaldi skipa koma nú frá Noregi og Grænlandi en lítið er um að íslensk skip komi í slipp um þessar mundir.

 

Anton Benjamínsson, framkvæmdarstjóri Slippsins, segir ástæðuna fyrir því meðal annars vera óvissu um það hvort og hvernig fiskveiðistjórnunarkerfinu verði breytt, útgerðir bíði með framkvæmdir þar til mál skýrist. Hann segir þetta áhyggjuefni. En það eru ýmis verkefni á landi sem Slippurinn vinnur og til dæmis hefur verið mikið að gera að undanförnu við að þjónusta aflþynnuverksmiðju Becromal sem hefur verið starfrækt á Akureyri í tvö ár. DNG handfærarúllur eru líka framleiddar í Slippnum og segir Anton það mikilvægan hluti af starfsseminni að sinna nýsköpun og þróun. Hér er hægt að horfa á Landann á netinu: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4565163/2011/02/20/




Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf