rijudagur 13.oktber 2009
Tenor er nú kominn
upp í kví og er verið að koma honum í klassa og gera söluhæfan. Eyborg EA 55 er komin í slipp í skrúfu- og
stýrisviðgerð, einnig er verið að mála skipið. Þorsteinn GK 15 er einnig í slipp. Þá er Ljósafell SU 70
nýkomið í slipp og almálun.
Áfram er unnið í Barða NK 120 og eru áætluð verklok í desember. Þá er vinna við Poseidon EA 303 komin á lokastig og Slipparar eru einnig að vinna við að setja upp hina nýju aflþynnuverksmiðju Becromal í Krossanesi.
Hér að neðan má síðan sjá myndir sem teknar voru í dag í Slippnum :

Verið að grunna Eyborgina.

Kanturinn í Slippnum.

Þorsteinn á þurru.

Poseidon, Barði og Ljósafellið.

Unnið við Eyborgina.


Unnið að nýrri vinnslulínu í Barða.

Björn í nærmynd.

Vatnsskurðarvélin að skera.










