Slippurinn Akureyri ehf.

K. Arctander lagðist að kantinum í morgun Það er mikið líf í Slippnum þessa daganna.  Verið er að leggja lokahönd á Hoffellið og Hákon, en þau hafa verið

K. Arctander lagðist að kantinum í morgun

Það er mikið líf í Slippnum þessa daganna.  Verið er að leggja lokahönd á Hoffellið og Hákon, en þau hafa verið í almennum slipp síðustu daganna.  Fyrir helgi var síðan Sigurbjörgin frá Ólafsfirði tekin upp og verður skipið málað ásamt því að sinnt verður almennum slippverkefnum.  Einnig sér fyrir lokin á breytingunum á Poseidon í rannsóknarskip úr skuttogara.  Þá kom í slipp í morgun togarinn K. Arctander frá Lofoten í Noregi.  En skipt verður um allan frystibúnað í skipinu, bæði frysta og vélbúnað.       

 

 

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf