Slippurinn Akureyri ehf.

Fréttamolar Þó sá tími sé núna þar sem hvað flestir starfsmenn okkar eru í sumarleyfi, eru ýmis verkefni í gangi.  Eftir sem áður erum við með starfsmenn

Fréttamolar

Þó sá tími sé núna þar sem hvað flestir starfsmenn okkar eru í sumarleyfi, eru ýmis verkefni í gangi.  Eftir sem áður erum við með starfsmenn okkar í vinnu í Krossanesi við það að reisa aflþynnuverksmiðju fyrir Becromal.  En þar hafa verið 6 til 15 manns við vinnu frá okkur.  Búið er að sandblása Þerney RE-101 og er nú verið að mála skipið, ásamt ýmsum öðrum verkefnum um borð.  Einnig er unnið áfram í Posedon EA-303.  Eftir verslunarmannahelgi er síðan von á Kleifarbergi ÓF-2, Arnari HU-1 og Herjólfi, þannig að næg verkefni bíða starfsmanna er þeir koma til vinnu eftir sumarleyfi í ágúst.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf