fimmtudagur 10.júní 2010
Slippurinn Akureyri ehf. hefur
lokið við að breyta Poseidon EA 303 í rannsóknarskip. Skipið mun sigla í kvöld klukkan 22:00 frá Akureyri áleiðis til Kanada,
þar sem sett verða í hann botnrannsóknartæki. Eftir það mun skipið halda til rannsókna á hafsbotninum á milli Kanada og
Grænlands.
Við óskum eigendum og áhöfn til hamingju með skipið og óskum þeim velfarnaðar í starfi.









