Almennt
DNG alsjálfvirka færavindan hefur verið framleidd síðan 1985 og til marks um gæði vindurnar er óhætt að fullyrða að yfir 90% af framleiddum DNG færavindum frá upphafi eru enn í fullri notkun. Fyrirtækið Slippurinn Akureyri ehf. framleiðir vindurnar og sér um sölu og þjónustu gagnvart viðskiptavinunum. Vindan er alfarið smíðuð og samsett á Akureyri.
Hagkvæmt veiðarfæri
DNG vindan er háþróað veiðitæki sem tryggir fiskimönnum mikil afköst með litlum tilkostnaði. Færafiskur er talinn besta hráefnið, sem sýnir sig á fiskmörkuðum víðs vegar um heim allan. Út frá þessari staðhæfingu segir sig sjálft að færaveiðarnar eru hagkvæmasti veiðiskapur sem völ er á.
Fjölbreytni og gervigreind
DNG vindan inniheldur mörg mismunandi veiðikerfi, svo sem fyrir makríl, þorsk, ufsa, smokkfisk, beittan öngul, tröpukeip og ýmis leitarkerfi. Notandinn getur einnig útbúið sín eigin veiðikerfi og sín sérstöku keip og geymt í minni vindunnar
Vistvænar veiðar
Í heimi þar sem umhverfisvernd fær sífellt meiri athygli beinir samfélagið sjónum sínum m.a. að fiskveiðiflotanum. Olíunotkun færabeiðibáts er með því minnsta sem þekkist á hvert veitt kíló fiskjar. Við handfæraveiðar er engin mengun af veiðarfærum sem týnast í sjó og áhrif á botn og gróður er engin. Því er eru vandfunin vistvænni veiðarfæri.
Sparneytni
Með áralangri þróun og rannsóknum hefur tekist að hanna vindu sem er kröftug, sparneytin og auðveld í stjórnun. Meðalstrumnotkunin á 24. volta vindu er aðeins um 2 Amper. Þörfin á stórum og þungum geymum er mun minni og 4 vindur eru um 10 tíma að tæma 80 Amperstunda geymi. En einmitt þegar um planandi báta er að ræða skiptir þyngd á geymum miklu máli. Vindan getur tengst bæði í 12 og 24 volt.
Rekstraröryggi
DNG vindan er hönnuð fyrir erfiðustu aðstæður til sjós og með það fyrir augum að bilanatíðni sé í algeru lágmarki. Vindan er vatnsheld og búin til úr seltuþolnu áli og ryfríu stáli til þess að koma í veg fyrir tæringu og því álagi sem sjómennsku fylgir, t.d. þungum höggum. Áður en vindan er afhent fer hún í gegnum strangt gæðapróf og hún afhendist með tveggja ára ábyrgð.








