Í einum
vinsælasta sjónvarpsþætti Ríkisútvarpsins í gærkvöldi var fjallað um Slippinn Akureyri, en Slippurinn framleiðir einmitt DNG
handfærarúllurnar. Rætt var við Anton Benjamínsson framkvæmdastjóra Slippsins og farið um víðan völl, en einnig litið við
í framleiðsluna á DNG vindunum. Slippbrotið úr þættinum má sjá hér .
Er íslenski flotinn í niðurníðslu?
Anton Benjamínsson, framkvæmdarstjóri Slippsins, segir ástæðuna fyrir því meðal annars vera óvissu um það hvort og hvernig fiskveiðistjórnunarkerfinu verði breytt, útgerðir bíði með framkvæmdir þar til mál skýrist. Hann segir þetta áhyggjuefni. En það eru ýmis verkefni á landi sem Slippurinn vinnur og til dæmis hefur verið mikið að gera að undanförnu við að þjónusta aflþynnuverksmiðju Becromal sem hefur verið starfrækt á Akureyri í tvö ár. DNG handfærarúllur eru líka framleiddar í Slippnum og segir Anton það mikilvægan hluti af starfsseminni að sinna nýsköpun og þróun. Hér er hægt að horfa á Landann á netinu: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4565163/2011/02/20/









