Nóg er um
að vera í framleiðslu á nýjum DNG vindum fyrir komandi vertíð. En því miður eins og síðastliðin 2 ár,
þá höfum við ekki undan eftirspurninni og framboðið er því takmarkað. Við hvetjum útgerðarmenn til þess að reikna með
6 vikna afhendingartíma á nýrri vindu. Við þökkum það traust sem okkur er sýnt með þessari miklu eftirspurn.
Útgerðarmenn hafa verið óvenju litaglaðir fyrir komandi sumar og hér að neðan gefur að líta vindur í framleiðslu, prófunum og tilbúnum til pökkunar.












Staðlaður framleiðslulitur á DNG c-6000i er í dag svartur og þannig er hún til að mynda seld á erlenda markaði. Hægt verður að panta fleiri liti, en verða menn þá að reikna með lengri afhendingartíma en ef menn keyptu svarta DNG. Svarta DNG má sjá hér að neðan :










