rijudagur 27.oktber 2009
Nú er hægt að
fá DNG C-6000i vinduna í ýmsum litum með litlum aukakostnaði. Vindurnar eru núna Pólýhúðaðar í stað lökkunar
áður. Pólýhúðunin er mun sterkari en lakkið og því eiga vindurnar að halda sínu upprunalega útliti mun lengur.
Reikna má með upp í sex vikna biðtíma á nýjum vindum.
Litir sem við höfum nú þegar afhent í eru svartur, rauður, grænn og grár. Sjá má myndir af vindunum hér að neðan.













