mnudagur 08.mars 2010
Við viljum minna eigendur DNG handfæranna á að athuga hjá sér framleiðslunúmerin og halda þeim til haga. Nokkuð hefur borið
á þjófnaði á DNG rúllum af bátum, þó sérstaklega á SV-horninu. Það eykur líkurnar tölvert að
þeir sem verða fyrir skaða endurheimti veiðarfærin sín, ef þeir geta gefið lögreglu og okkur upp framleiðslunúmerin á stolnu vindunum.
Einnig viljum við minna á þjófavörnina í C-6000i rúllunum. En eftir að kveikt hefur verið á henni getur aðeins sá aðili sem setti lykilorðið í vinduna eða við kveikt á henni. Allir aðrir hafa þar með ekkert notagildi af vindunni.
Einnig beinum við því til þeirra sem eru að kaupa notaðar DNG vindur að spyrja um framleiðslunúmerin á þeim og leita síðan upplýsinga hjá okkur, hvort að þær séu illa fengnar.









