DNG

DNG

DNG


DNG alsjálfvirka færavindan hefur verið framleidd síðan 1985 og til marks um gæði vindurnar er óhætt að fullyrða að yfir 90% af framleiddum DNG færavindum frá upphafi eru enn í fullri notkun.  Fyrirtækið Slippurinn Akureyri ehf framleiðir vindurnar og sér um sölu og þjónustu gagnvart viðskiptavinunum. Vindan er alfarið smíðuð og samsett á Íslandi.

Fréttir

Frétt RUV um makrílveiðar frá 15. júlí

Lesa meira

DNG pantanir fyrir árið 2011.

Við erum farnir að taka á móti pöntunum fyrir árið 2011.  Það sem eftir er ársins munum við framleiða DNG-rúllur upp í pantanir.  Mikil sala hefur verið hjá okkur síðastliðin tvö ár og öll framleiðsla hefur selst upp.  Þar sem vindurnar eru handsmíðaðar er bara hægt að framleiða ákveðið magn á ári miðað við núverandi stærð framleiðslunnar og gæði DNG-vindunnar.   Lesa meira

Fiskfréttir fjalla um makrílveiðar

Þann 4. mars síðastliðinn var spurt hvort að makrílveiðar væru góður kostur fyrir smábáta.  Hægt er að nálgast vefumfjöllun Fiskifrétta hér.   Einnig má rýna í greinina hér að neðan.  Lesa meira

Athugið framleiðslunúmerin á DNG vindunum

Við viljum minna eigendur DNG handfæranna á að athuga hjá sér framleiðslunúmerin og halda þeim til haga.   Nokkuð hefur borið á þjófnaði á DNG rúllum af bátum, þó sérstaklega á SV-horninu.  Það eykur líkurnar tölvert að þeir sem verða fyrir skaða endurheimti veiðarfærin sín, ef þeir geta gefið lögreglu og okkur upp framleiðslunúmerin á stolnu vindunum. Lesa meira

Fleiri litir

Sú nýjung að reyna að verða við óskum manna um útlit DNG C-6000i handfæravindunnar hefur slegið í gegn og kaupendur eru ánægðir með að geta valið lit á græjuna sína.  Við reynum að verða Lesa meira

landakort
Bæklingur
FACEBOOK
Handbok2010
Tengimynd

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf